Logo Katla félagsmannasjóðurKatla félagsmannasjóður
    • Um sjóðinn
    • Stjórn
    • Aðildafélög
    • Tilkynningar
    • Persónuverndarstefna
            • English
            • Mínar síður
            Logo Katla félagsmannasjóðurKatla félagsmannasjóður
            • Sjóðurinn
              • Um sjóðinn
              • Stjórn
              • Aðildafélög
              • Tilkynningar
              • Persónuverndarstefna
            • English

            Velkomin á vef Kötlu félagsmannasjóðs

            Athugið!
            Aðild að Kötlu félagsmannasjóði eiga eingöngu starfsmenn sveitarfélaga sem eru félagsmenn aðildarfélaga BSRB (fyrir utan starfsmenn Reykjavíkurborgar), einnig eiga aðild að sjóðnum starfsmenn hjá Hjallastefnunni og sjálfseignarstofnunum sem eru með ákvæði um Félagsmannasjóð í kjarasamningi. Réttur sjóðfélaga er bundinn við aðild að sjóðnum líkt og reglur sjóðsins kveða á um.

            Sækja um í Kötlu félagsmannasjóð
            Banner mynd
            Tilkynningar
            /
            26. janúar 2025

            Greiðsla út sjóðnum

            Þar sem 1. febrúar 2025, lendir á laugardegi verður greitt úr sjóðnum eftir helgi eða 3. febrúar, sem er fyrsti virki dagur mánaðarins. Styrkupphæðin er miðuð við innborgun til Kötlu félagsmannasjóðs á tímabilinu 1. janúar til 31. desember árið 2024 frá vinnuveitendum. Dregin er af staðgreiðsla skatta sem er 31,49%. Sjá reglur um skattaleg skil á innri vef sjóðsins. Þeir sem eiga eftir að skila inn upplýsingum geta gert það áfram en þurfa að klára að fylla út umsókn og verður greitt út við næstu útborgun.
            Tilkynningar
            /
            02. febrúar 2024

            Greitt hefur verið úr Félagsmannasjóðnum Kötlu

            Hlutverk sjóðsins er að auka tækifæri sjóðsfélaga til starfsþróunar, m.a. með því að sækja sér fræðslu og endurmenntun og með því að sækja ráðstefnur, þing og námskeið til þess að þróa sína starfshæfni. Félagsmannasjóðurinn er félagslegur jöfnunarsjóður þar sem greitt er út með hliðsjón af hlutfalli af inngreiðslu og starfstíma. Hámarksútgreiðsla á þessu ári er kr. 110.000.
            Tilkynningar
            /
            14. desember 2023

            Næsta umsóknartímabil er til 28. desember nk. vegna ársins 2022

            Mikilvægar upplýsingar varðandi útgreiðslu sjóðsins. Greitt er út í desember vegna þeirra sem voru í starfi árið 2022 og fyrsta útgreiðsla vegna þeirra sem voru í starfi 2023 er í febrúar. Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast ýtið á tilkynninguna. ​
            Tilkynningar
            /
            10. mars 2023

            Reglur um skattaleg skil

            Félagsmannasjóðurinn Katla ítrekar mikilvægi skattalegrar meðferðar styrkja á skattaframtali 2023 eins og minnst var á í úthlutunarpósti til félagsmanna. Forskráning styrkja á framtali skilaði sér ekki á öll framtöl. Við hvetjum félagsmenn til að skoða leiðbeiningar á vef Kötlu https://katla.bsrb.is/ innri vef, undir fyrirsögninni; Reglur um skattaleg skil.
            Tilkynningar
            /
            17. febrúar 2023

            Greitt út úr Kötlu

            Greitt hefur verið úr Félagsmannasjóðnum Kötlu. Við fyrstu útgreiðslu ársins kom upp tæknivilla sem leiddi í ljós ranga úthlutun og hefur það verið leiðrétt. Félagsmannasjóðurinn er félagslegur jöfnunarsjóður og var útgreiðsla hækkuð upp eða látin standa í stað með hliðsjón af hlutfalli af inngreiðslu og starfstíma. Minna var til í sjóðnum en við útgreiðslu síðasta árs og er því hámarksútgreiðsla á þessu ári kr. 94.000. Stjórn Kötlu þykir miður að upp hafi komið tæknivilla sem nú hefur verið leiðrétt.
            Tilkynningar
            /
            06. febrúar 2023

            Því miður þá hefur komið upp tæknivilla við úthlutun úr Kötlu

            Unnið er að úthlutun úr Kötlu félagsmannasjóði og er lokið að greiða til 1/4 fjölda félagsmanna en vegna tæknilegra úrlausnarefna mun úthlutun dragast fram yfir miðjan febrúar.



            Ef spurningar vakna þá þarf að leita til þess stéttarfélags sem viðkomandi er aðili að.