Við ákvörðun styrkupphæðar er miðuð við innborgun vinnuveitenda sem greiðir 2,2 prósentu af heildarlaunum til Kötlu félagsmannasjóðs á tímabilinu 1. janúar til 31. desember árið á undan. Félagsfólk þarf að sækja sérstaklega um styrkinn á sérstöku eyðublaði á mínum síðum Kötlu og greitt er út úr sjóðnum fyrsta virka dag febrúar ár hvert eða síðasta virka dag janúarmánaðar.
Þeir sem hafa fengið greitt út úr sjóðnum áður þurfa ekki að endurnýja umsókn sína nema að bankareikningsupplýsingar hafi tekið breytingum, en aðrir sem ekki hafa fengið greitt þurfa að sækja um og skila inn bankareiknings upplýsingum.
Sérstök athygli er vakin á að allir sem starfa hluta úr ári sem er á undan fá einnig greitt úr sjóðnum í febrúar ár hvert, svo mikilvægt er að sækja um og leggja inn bankareiknings upplýsingar.